Það er enginn annar en Askasleikir sem mætir sjötti til leiks í þessari jólasveinasyrpu.

Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. –
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.