Sigurbjörn vann með fullu húsi!

Seinni hluti atskákmóts Hafnarfjarðar fór fram fimmtudaginn 17. mars. Sigurbjörn Björnsson lagði alla andstæðinga og tryggði sér örugglega titilinn Atskákmeistari Hafnarfjarðar 2005. Hrannar Baldursson var öruggur í öðru sæti, en þess má geta að hann fékk þægilegan vinning gegn Jóhanni Ingvarssyni sem mætti of seint. Þorvarður Fannar Ólafsson tryggði sér 3. sætið í lokaumferðinni með jafntefli gegn Hrannari.

Úrslit:

1.Sigurbjörn Björnsson 8 af 8
2.Hrannar Baldursson 6,5
3.Þorvarður Fannar Ólafsson 5,5
4-5.Jón Magnússon 5
4-5.Jóhann Ingvarsson 5
6-7.Svanberg Már Pálsson 4,5
6-7.Heimir Ásgeirsson 4,5
8-12.Páll Sigurðsson 4
8-12.Ingi Tandri Traustason 4
8-12.Sveinn Arnarsson 4
8-12.Gísli Hrafnkelsson 4
8-12.Geir Guðbrandsson 4
13-15.Arnar Jónsson 3,5
13-15.Brynjar Arnarsson 3,5
13-15.Ragnar Árnason 3,5
16.Kristján Ari Sigurðsson 2,5
17-18.Baldur Snæhólm Einarsson 2
17-18.Sverrir Þorgeirsson 2 *
19.Sverrir Gunnarsson 1 *

* mættu ekki til leiks í seinni umferðinni.

Að endingu má óska Sigurbirni til hamingju með glæsilegan sigur og þakka keppendum fyrir gott mót.