Í hádeginu eða klukkan 13:00 í dag léku okkar stelpur í N1 deildinni gegn HK. Fyrir leikinn voru bæði lið með 2 stig, en Haukar höfðu einungis leikið tvo leiki en HK stelpur fjóra.
Leikurinn byrjaði ágætlega hjá okkar stelpum og skoruðu þær fyrstu tvö mörkin í leiknum. Gestirnir voru ekki lengi að jafna það forskot og var jafnt á öllum tölum þangað til í stöðunni 10-10 er Haukar skoruðu þrjú mörk í röð undir lok fyrri hálfleiks. En staðan í hálfleik var 13-11 Hauka stelpunum í vil.
HK stelpur byrjaði seinni hálfleikinn á því að jafna leikinn, Hauka stelpurnar voru alltaf skrefinu á undan megnið af seinni hálfleiknum. En í stöðunni 16-16 urðu síðan kaflaskipti í leiknum, þegar Haukar skoruðu fimm mörk gegn einu marki HK og breyttu því stöðunni í 22-17. Áfram héldu stelpurnar að auka forystuna.
Leikurinn endaði síðan 30-23 Haukum í vil.
Fyrri hálfleikurinn einkendist af mistökum beggja liða og var lítið skorað fyrstu mínútur leiksins. Í seinni hálfleik var allt annar bragur hjá okkar stelpum og náðu þær hægt og bítandi að innbyrða sigur í leiknum.
Skotnýting;
Hann Guðrún 9 mörk/ 14 skot
Harpa Melsteð 4 / 4
Ramune 4 / 5
Inga Fríða 3 / 3
Hind 3 / 3
Nína 3 / 5
Erna H. 2 / 3
Ausra 1 / 1
Sandra 1 / 3
Markvarslan;
Laima Miliauskaite 5 skot / 30.mínútur
Bryndís Jónsdóttir 6 / 30.mínútur
Gangur leiksins;
2-0 | 4-4 | 6-4 | 10-10 | 13-11 | 16-16 | 22-17 | 25-20 | 28-22 | 30-23 |
– Arnar Daði Arnarsson skrifar