Í gær laugardag tóku Haukar á móti HK/Víking í 1.deild A.riðils kvenna á Ásvöllum. Þetta var lokaleikur beggja liða og þriðja viðureign þeirra á þessu sumri. Í þessari þriðju tilraun tókst Haukum að leggja HK/Víking að velli í fjörugum og spennandi leik. Lokatölur urðu 2-1 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 1-0 fyrir Hauka. Mörk Hauka skoruðu Linda Rós Þorláksdóttir og Bjarney Anna Bjarnadóttir. Fyrir vali á manni leiksins varð Margrét Helga Stefánsdóttir og óskum við henni til hamingju með tilnefninguna en hún brá sér í gervi markmanns í fyrsta sinn í sumar og stóð vaktina vel.