Sigur á Snæfell

Haukar tóku á móti Snæfellingum í gærkvöldi í Iceland Express-deild kvenna að Ásvöllum.

Fyrirfram mátti búast við auðveldum sigri Hauka en annað kom á daginn og sýndu Snæfellsstúlkur að það er mikið spunnið í þetta lið.

Lokatölur leiksins voru 80-63 og gefa lokatölur leiksins ekki alveg rétt mynd af leiknum.

Haukar voru sterkari aðilinn allan leikinn og höfðu forystuna nánast frá upphafi. Þær leiddu oftast með 6-10 stigum og náðu aldrei að hrista Snæfell af sér.

Undir lok leiksins keyrðu Haukar upp muninn og unnu að lokum 17 stiga sigur 80-63.

Leikurinn gefur góð fyrirheit fyrir tímabilið. Haukaliðið lenti í smá vandræðum en gaf samt aldrei færi á sér og vann góðan sigur.

Stigahæst hjá Haukum var Slavica Dimovska með 25 stig og 12 stoðsendingar. Kristrún Sigurjónsdóttir var með 20 stig.

Mynd: Slavica Dimovska var stigahæst Haukakvenna í gær og stjórnaði leik liðsins af kraftistefan@haukar.is