3.flokkur kvenna spilaði sinn fyrsta leik í Faxaflóamótinu í dag sunnudag 17.10 og tóku okkar stelpur á móti stöllum sínum úr hinu Hafnarfjarðarliðinu FH og unnu verðskuldaðan sigur 3-0. Okkar stelpur spiluðu
vel og hefðu mörkin hæglega geta orðið fleiri. Fjórar stelpur úr 4.fl.kv. spiluðu með og stóðu sig mjög vel eins og reyndar allt liðið í heild.