Sara Björk á reynslu til HSV

Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður 2. & meistaraflokks kvenna og landsliðskona er á leiðinni til Þýskalands með Hólmfríði Magnúsdóttir þar sem þær stullur munu æfa með þýska stórliðinu Hamburg SV.

Eins og flest allir vita sló Sara Björk í gegn í sumar í 1.deildinni með Haukum og var til að mynda valinn í A-landslið kvenna í fyrsta sinn fyrir leik Íslands og Slóveníu ytra. En Sara er einungis 17 ára að aldri.

Við óskum auðvitað Söru og Hólmfríði vel gengni í Þýskalandi og hver veit nema þær nái að bræða þýskustálin ?