Í hádeginu í dag var skrifað undir samning milli HSÍ og Sýnar um sýningarréttinn á leikjum frá Meistaradeildinni í vetur. Eins og alþjóð ætti að vita leika Haukar í B-riðli með stórliðunum Barcelona, Magdeburg og Vardar og mun Sýn vera með beinar útsendingar frá leikjum Hauka í Meistaradeildinni.
Frábært fyrir íslenskan handbolta.