Sænskir krakkar koma í heimsókn

Á miðvikudaginn koma í heimsókn til okkar Haukafólks krakkar frá Svíþjóð. Krakkarnir eru á aldrinum 15-16 ára og eru í Junedals skólanum. Krakkarnir fá góða dagskrá á meðan þessari heimsókn stendur, meðal annars að heimsækja Gullfoss, Geysi og Bláa lónið, fara í „sight-seeing“ um Reykjavík og spila á handboltamóti sem haldið verður á Ásvöllum á laugardag og sunnudag.

Um helgina fer fram mót þar sem krakkarnir okkar í 4.flokki karla og kvenna auk unglingaflokks kvenna og tveggja annarra liða í hvorum flokki, munu spila við Svíana. Mótið fer fram á laugardagsmorgun, frá klukkan 9:00 til 11:40. Á sunnudag verður mótið áfram og verður spilað frá klukkan 9:00 til um 17. Leikið verður á hraðmótarformi. Leikið verður 1 x 35 mínútur. Við hvetjum Haukafólk til þess að koma og kíkja á framtíð félagsins leika.

Sænsku krakkarnir fara svo af landi brott miðvikudaginn 24. maí. Við vonum að sjálfsögðu að ferðin eigi eftir að vera þeim eftirminnileg.