Þá er komið að því að rukka æfingagjöldin fyrir tímabilið september 2007 út ágúst 2008. Á allra næstu dögum munu greiðsluseðlar ýmist dúkka upp í heimabönkum foreldra og/eða detta inn um póstlúgurnar.
Hlutur iðkenda í æfingagjöldum fyrir árið er 15.000 krónur. Ef þið eru fljót að bregðast við og greiðið fyrir 15. des 2007 fæst 2500 kr. afsláttur af gjaldinu. Heildarupphæð æfingagjaldanna er 39.000 kr. fyrir allt árið en þar af kemur 24.000 kr. niðurgreiðsla frá Hafnarfjarðarbæ fyrir þá sem æfa allt árið. Eftirstöðvarnar (hlutur iðkenda) er því 15.000 krónur.
Enginn systkinaafsláttur er veittur en hvert heimili borgar aðeins 3 greiðsluseðla fyrir æfingagjöldum hjá öllu félaginu. Sem sagt, ef t.d. tvö systkini æfa bæði tvær boltaíþróttir hjá Haukum greiða þau aðeins þrjá greiðsluseðla upp á 15.000 krónur (12.500 kr. ef þið eruð fljót að greiða). Allar athugasemdir eða óskir um niðurfellingu eða frekari upplýsingar varðandi æfingagjöldin skal senda á netfangið: fotbolti „hjá“ haukar.is