Pétur Örn Gíslason útnefndur íþróttamaður Álftanes

Knattspyrnudeild Hauka kynna með stolti okkar mann Pétur Örn Gíslason sem valinn var íþróttamaður Álftaness fyrir árið 2004. Pétur Örn spilar með 2. flokki auk þess sem hann spilaði sína fyrstu leiki með meistaraflokki á síðasta tímabili. Auk þess er Pétur fastamaður í U17 landsliðinu. Knattspyrnudeildin óskar Pétri og fjölskyldu hans hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur.