Nú líður að Pæjumóti Þormóðs Ramma Sæberg hf. á Siglufirði. Haukar hafa verið með fjölmennustu stuðningsmönnum á mótinu undanfarin ár og reiknum við með að svo verði einnig í ár. Vandamálið hefur hins vegar verið hvað fólk hefur tjaldað dreift um svæðið. Núna stendur öllum Haukum til boða frábær aðstaða á túninu fyrir fram Þormóð Ramma Sæberg hf. Snyrting og annar aðbúnaður er til fyrirmyndar á svæðinu. Tjaldstæðið er við Gránugötu sem er örstutt frá miðbænum. Leikjaniðurröðun er hægt að skoða á heimsíðu mótsins.
Heimasíða Pæjumóts
Kort af Siglufirði