Páskaeggjamót Hauka

Páskamótið fer fram þriðjudaginn 22. mars frá kl. 17.15 til 19.30 í Íþróttamiðstöð Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði. Þe. á framlengdum æfingatíma skákdeildar Hauka.

Öllum krökkum 15 ára og yngri er opin þátttaka og er ókeypis.

Tefldar verða 7 umferðir með 5 mínútna umhugsunartíma á mann og notast verður við Svissneskt kerfi.

Teflt er um vegleg páskaegg í bæði stráka og stelpnaflokki fyrir auk þess sem veglegur útdráttur fer fram.

Dagskrá skákdeildarinnar verður annars eftirfarandi fram í lok apríl.
22. mars. Páskamót
29. mars. Æfing. (3. í páskum)
5. apríl. Skólaskákmót Hafnarfjarðar Opið öllum grunnskólanemendum í Hafnarfirði.
12. apríl. Æfing. Undirbúningur fyrir Íslandsmót Grunnskólasveita.
19. apríl. Æfing.
26. apríl. Æfing.

kveðja.
Páll þjálfari