Næstkomandi mánudag 18.okt. kl. 19:30 í forsal hátíðarsals verður haldinn opinn fundur á vegum knattspyrnudeildar vegna skipulags og mannvirkjamála. Mikilvægt er að allir velunnarar knattspyurnudeildarinnar mæti á þennan fund, þar sem til stendur að gera nýtt deiliskipulag fyrir Ásvallarsvæðið. Stjórn deildarinnar kallar eftir aðstoð félagsmanna við tillögugerð og hugmyndir að nýju svæði fyrir framtíðar aðaleikvöll deildarinnar, auk tillagna vegna knatthúss og æfingarsvæðis fyrir deildina. Nú er mikilvægt að allir mæti og láti í sér heyra, því að nú er tækifæri á að hafa áhrif á skipulag svæðisins.