Laugardaginn 24. janúar fer fram fjölskylduhátíð á Ásvöllum. Hátíðin hefst með opnum foreldrafundi kl. 15:00 og eru allir foreldrar hvattit til að mæta og taka börnin með.
Haukur Haraldsson, sálfræðingur, og Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, halda erindi og fjalla m.a. um:
– Hvernig byggjum við jákvætt umhverfi fyrir börn og unglinga í íþróttum.
– Hvernig beislum við reiðina til góðra verka í íþróttum?
– Mikilvægi góðra fyrirmynda
– Þátttöku foreldra í starfi félagsins
Kl. 16:00 mætast Haukar og FH í hörkuleik í N1 deild kvenna og í kjölfarið fer fram toppslagur í 1. deild karla þegar Haukar U taka á móti Selfossi. Mætum öll á Ásvelli á laugardaginn! Barnagæsla verður að sjálfsögðu í boði á meðan leikur Hauka og FH stendur yfir á fjölskylduhátíðinni eins og ætíð um helgar.
HAUKAR – fyrir fjölskylduna í Firðinum