Nýr formaður Hauka

Aðalfundur félagsins var haldinn í gær hér í Samkomusalnum.
Formaður félagsins til síðustu 7 ára, Samúel Guðmundsson, lét af störfum og í hans stað var kjörinn
Magnús Gunnarsson. Magnús hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins undanfarin ár.
Verður hann starfandi formaður jafnframt því að vera framkvæmdastjóri Rekstrarfélags Hauka ehf.
Félagið þakkar Samúel góð og farsæl störf í þess þágu og býður Magnús velkominn til starfa.