Gengið hefur verið frá félagsskiptum tveggja leikmanna sem hafa æft með Meistarflokknum í vetur. Betim Haxhiajdini er 23 ára miðju/sóknarmaður sem hefur leikið með Leikni Reykjavík. Hermann Valdimar Jónsson er tvítugur varnarmaður sem kemur frá FH, en Hermann hefur auk þess skrifað undir 3 ára samning við Hauka. Við bjóðum báða þessa leikmenn velkomna í Hauka.