Nóg að gera hjá stelpunum

Það er nóg að gera hjá stelpunum þessa dagana. Á morgun, miðvikudag, mæta þær Akureyri klukkan 19:00 á Ásvöllum. Á laugardaginn er svo stærsti leikur ársins þegar stelpurnar okkar leika gegn Gróttu í bikarúrslitaleiknum í Laugardalshöll. Sá leikur hefst klukkan 13:30.

Mætum á leikinn á morgun og hitum okkur upp fyrir bikarslaginn á laugardaginn. Mætum svo á laugardaginn og hvetjum stelpurnar okkar til sigurs því að sjálfsögðu ætlum við að vinna bikarinn, því hann á heima á Ásvöllum.

ÁFRAM HAUKAR!!!