Það verður sannkallaður nágrannaslagur í Deildarbikarkeppni KSÍ á næsta ári en Haukar og FH eru saman í riðli í karla- og kvennaflokki.
Meistaraflokkur karla er í 4. riðli A-deildar ásamt nágrönnunum í FH, ÍBV, Víking Ó., Þrótti R., og ÍA. Leikjaniðurröðun verður gefin út seinna.
Meistaraflokkur kvenna er einnig með FH í riðli en þær leika í C1-deild kvenna. Fyrir utan FH og Hauka þá eru ÍA, Selfoss og Þróttur R. í riðlinum. Leikjaniðurröðun verður gefin út seinna.
Mynd: Strákarnir í meistaraflokki karla mæta nágrönnum sínum í FH í Deildarbikarnum. – stefan@haukar.is