Handboltaveislan heldur áfram hjá strákunum okkar en á laugardag eiga þeir heimaleik í Meistaradeildinn gegn sænska liðinu Sävehof. Leikurinn hefst kl. 18:00 á Ásvöllum og hvetjum við alla til að mæta og styðja strákana. Búast má við mjög erfiðum leik þar sem svíarnir eru ansi öflugir.
Forsala miða er í SPH Strandgötu og SPH Fjarðarkaupum. Einnig í versluninni Fjölsport í Firði og á Ásvöllum.
Allir að mæta á handboltahátíðina á Ásvöllum laugardaginn 23. okt. kl. 18:00 og styðja íslenskan handbolta.