Okkar menn tóku á móti HK-ingum í kvöld í leik sem var gríðarlega mikilvægur fyrir bæði lið. Aðstæður til knattspyrnuiðkunar voru eins og best verður á kosið, blíðskaparveður og völlurinn í toppstandi. Áhorfendur fjölmenntu á leikinn í kvöld, enda var frítt á völlinn þökk sé verktakafyrirtækinu Heimir og Þorgeir, eiga þeir heiður skilinn fyrir framtakið.
Haukaliðið í kvöld: Jöri; Davíð, Óli Jón, Daníel, Darri; Edilon (Hilmar Trausti), Gummi Magg (Hilmar Geir), Ryan, Goran (Zoran); Kristján Ómar, Ómar Karl.
Leikurinn fór frekar rólega af stað og fátt sem benti til að mörkum myndi rigna í kvöld. Fá færi litu dagsins ljós í fyrri hálfleik og nánast það eina markverða úr hálfleiknum var hið stórglæsilega mark sem Edilon „Páfi“ Hreinsson setti á 17. mínútu leiksins. Markið kom eftir hraða sókn okkar manna þar sem Páfinn fékk boltann vinstra megin í vítateignum, hann var ekkert að tvínóna við hlutina heldur smellti boltanum neðst í fjær hornið, óverjandi fyrir Gunnleif í marki gestanna.
Strax í næstu sókn á eftir fengu gestirnir sitt besta færi í hálfleiknum eftir smá misskilning milli Jöra og Daníels, en Davíð náði að bjarga hættunni frá á glæsilegan hátt.
Eins og áður sagði gerðist fátt markvert annað í fyrri hálfleik, gestirnir ógnuðu helst úr föstum leikatriðum, áttu skalla sem fóru yfir markið.
Staðan 1-0 í hálfleik.
Seinni hálfleikur var mun fjörugri en sá fyrri. Gestirnir byrjuðu örlítið betur, áttu til að mynda glæsilegan skalla að marki, en Jöri náði að verja boltann á stórglæsilegan hátt.
Um miðjan hálfleikinn höfðu okkar menn þó tekið öll tögl og hagldir á leiknum og það skilaði sér í öðru marki leiksins. Þar var aftur á ferðinni mannfræðingurinn Edilon. Hann fékk boltann eftir góðan undirbúning Ómars Karls, var í frekar þröngu færi en lék boltanum aðeins til hliðar og þrumaði boltanum í marknetið, 2-0. Samkvæmt okkar heimildum er þetta í fyrsta skiptið sem Páfi gerir tvö mörk í einum og sama leiknum, en kollegi Edilons, Jóhannes Páll Páfi II. lék í marki á sínum yngri árum og var ekki frægur markaskorari og lítið er vitað um íþróttaiðkun annarra Páfa.
Á 33. mínútu kom svo þriðja mark okkar manna. Þá höfðu þeir Ómar og Edilon hlutverkaskipti. Edilon lék upp vinstri kantinn, var kominn alveg upp að endamörkum þegar hann sendi fyrir og þar var Ómar Karl mættur og sendi boltann í netið, glæsilega að verki staðið og staðan orðin 3-0 og sigurinn í raun í höfn.
Gestirnir vöknuðu aðeins við þetta og bættu aðeins í sóknina og uppskáru mark fimm mínútum seinna. Glæsilegt skallamark eftir frábæra sendingu frá hægri kanti.
Þetta virtist gefa þeim ákveðna vítamínssprautu og þyngdust sóknir þeirra dálítið síðustu mínútur leiksins, sem gaf Haukunum aftur færi á hröðum sóknum. Ómar Karl fór þar fremstur í flokki og skapaði mikinn usla með hraða sínum. Hilmar Geir fékk einmitt dauðafæri eftir góða rispu Ómars upp hægri kantinn, en boltinn skoppaði illa fyrir Hilmar sem náði ekki að nýta sér færið.
Þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma fengu okkar menn aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig. Kristján Ómar og Hilmar Trausti stilltu sér upp við boltann og bjuggust flestir við því að Kristján myndi skjóta en annað kom á daginn því Hilmar tók af skarið og þrumaði boltanum framhjá varnarveggnum og í bláhornið, glæsilegt mark!
Staðan orðin 4-1 og menn biðu bara eftir lokaflauti dómarans. Einhver töf varð þó á flautinu þar sem Gunnleifur, hinn ágæti markvörður HK manna, meiddist illa eftir að hafa stokkið upp í bolta ásamt Ómari Karli. Gunnleifur var borinn af velli en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru, en þetta leit allavega ekki vel út fyrir hann.
Vonandi er fyrir hann og HK liðið að meiðslin séu ekki eins alvarleg og þau litu út fyrir að vera, enda hefur Gunnleifur verið einn af betri leikmönnum deildarinnar í sumar.
En góður sigur hjá okkar mönnum, og ótrúlegt en satt fyrsti sigurleikurinn á heimavelli í sumar. Þetta lofar svo sannarlega góðu fyrir framhaldið og gaman að geta þess að nú eru einungis sex stig sem skilja að neðsta liðið og liðið í þriðja sæti deildarinnar…þannig að það getur greinilega ennþá allt gerst.
Maður leiksins var þó án nokkurs vafa Edilon „Páfi“ Hreinsson og greinilegt að hann þyrfti oftar að vera í opnuviðtali við leikskrá Hauka.
Næsti leikur er gegn Þór á Akureyri, næstkomandi laugardag kl. 16:00
Áfram Haukar!