Lokahóf yngri flokka handboltans á miðvikudaginn

Deildarameistarar eldra ár 21. mars 2015Lokahóf yngri flokka handboltans verður haldið hátíðlegt miðvikudaginn 13. maí kl. 17:00 í íþróttasal Schenkerhallarinnar.

Yngstu flokkarnir fá allir verðlaun fyrir góðan og skemmtilegan vetur en hjá eldri flokkum verða veitt einstaklingsverðlun.

Meistaraflokkur kk. og kv. mun mæta á staðinn og hægt verður að sjá Íslandsmeistara bikarinn sem Haukar unnu á glæsilegan hátt í gær.

Veitingar verða í lokin og við hvetjum alla iðkendur og forráðamenn að mæta og taka þátt í skemmtilegum lokadegi.