Lokahóf deildarinnar

Lokahóf deildarinnar var haldið á Ásvöllum í gærkvöldi og var þar fagnað glæsilegum árangri vetrarins, en eins og allir ættu að vita eru bæði mfl. karla og mfl. kvenna Deildarmeistarar og Íslandsmeistrarar. Stórkostlegur árangur og sá besti sem um getur í sögunni en aldrei áður hefur félag unnið þessa báða titla, bæði í karla-og kvennaflokki. Þá má ekki gleyma utandeildinni en Haukar 2 eða “Bumburnar” eru einnig Íslandsmeistarar.

Að venju heiðraði Aðalstjórn félagsins alla Íslandsmeistara með verðlaunapeningum. Haukar í Horni völdu besta liðsmanninn og hjá stelpunum var það Ramune og hjá strákunum var það Páll Ólafsson, þjálfari. Þá var Geir Gunnarsson valinn “Haukari ársins”.

Deildin afhenti síðan eftirtalin verðlaun:
Besti leikmaður ungl.fl. kvenna: Erna Þráinsdóttir
Besti leikmaður 2.fl. karla: Sigurður Bjarki Einarsson
Bjartasta vonin í kvennaflokki: Erna Þráinsdóttir
Bjartasta vonin í karlaflokki: Andri Stefan
Besti leikmaður í mfl. kvenna: Hanna Guðrún Stefánsdóttir
Besti leikmaður í mfl. karla: Vignir Svavarsson

Þrír leikmenn voru kvaddir sérstaklega, þeir Ásgeir Örn Hallgrimsson, Vignir Svavarsson og Þórir Ólafsson. Þeir eru allir á leið erlendis í atvinnumennsku og er mikill söknuður af þeim enda alltaf erfitt af horfa á eftir ungunum sínum úr hreiðrinu. En við erum gríðarlega stolt af þessum strákum og samgleðjumst þeim innilega á því tækifæri að fara erlendis og “leika” sér í boltanum. Við munum svo sannarlega fylgjast með þeim í framtíðinni og óskum þeim alls hins best. Við vitum líka að þegar þeir verða “gamlir” þá koma þeir heim aftur.