Leikur hjá strákunum á morgun!

Fös. 7.des.2007 19.15 Ásvellir Haukar – Afturelding

Semsagt á morgun, koma Mosfellssveitungar í heimsókn til okkar á Ásvelli. Okkar menn eru sem stendur í efsta sæti og einungis búnir að tapa einum leik í deildinni, betur en öll önnur lið í deildinni!

Mosfellssveitungar eða Afturelding eins og lið þeirra heitir eru aftur á móti einungis búnir að sigra tvo leiki, gegn Val og ÍBV í þriðju og fjórðu umferð svo eru þeir einnig búnir að gera tvö jafntefli. Þeir eru semsagt með 6 stig eftir eftir 11 leiki og sitja í næst neðsta sæti deildarinnar. Þeir eru semsagt í fallsæti .. ásamt Norðanmönnum.

Leikur þessara liða í fyrstu umferð sem leikinn var í Mosfellssveit endaði með stórsigri okkar manna, 30-24. Í þeim leik fór Arnar Jón á kostum og setti heilar sjö sleggjur svo var Andri Stefan vinur okkar með aðeins færri mörk, en samt alveg góður sko, með 5 mörk.
Magnús Sigmundsson náði síðan að verja 10 skot frá leikmönnum Aftureldingar.
Aftur á móti var leikmaður nr. 85 hjá Aftureldingu með 4 mörk, Davíð Jónsson heitir sá ágætis leikmaður, svo má ekki gleyma nafna hans Ágústssyni sem var einnig með 4 kvikindi, en svo má allra síst gleyma nafna þeirra beggja, markvörðurinn Davíð Hníðdal Svansson sem varði heila 15 bolta.

Dómarar leiksins í sveitinni voru þeir Helgi Rafn Hallsson og félagi og góðkunningi okkar Haukamanna Sigurjón Þórðarsson, sonur Þórðar.

Viljum við hvetja ykkur til að koma á Ásvelli og styðja við bakið á strákunum, enda fáir leikir eftir fyrir áramót. Koma svo, viljum við ekki að strákarnir verði á toppnum í landsleikjahlénu góða ?

ÁFRAM Haukar !  & Ekkert annað! .. Aston Villa

– Arnar Daði Arnarsson skrifar.