Á sunnudaginn fer meistaraflokkur Hauka austur fyrir fjall og etja þar kappi við Selfyssinga en leikurinn hefst klukkan 14;00. Selfoss er í harðri baráttu um að komast upp í 1.deild og einnig að sigra deildina en þeir eru fimm stigum á eftir okkar mönnum þegar tvær umferðir eru eftir og því ætlum við Haukafólk að fjölmenna á Selfoss. Liðin í 3. og 4.sæti eru með 30 stig, átta stigum eftir Haukum og eiga því ekki möguleika að sigra deildina, en það eru ÍR og KS/Leiftur.
Fyrri leikur Hauka & Selfossar endaði með jafntefli 1-1 , eftir að Ásgeir Ingólfsson hafði komið Haukum yfir á 19.mínútu. Það var svo ekki fyrr en á 83.mínútu sem Sævar Þór Gíslason jafnaði.
Selfoss sigraði Aftureldingu í síðustu umferð 2-0 og gerði þar af verkum vonir Mosfellinga um að komast upp að engu. En bæði mörk Selfossar skoraði Sævar Þór Gíslason, en hann er markahæsti leikmaðurinn í deildinni með 17 mörk, þar af 7 úr vítum, það væri því fróðlegt að sjá Sævar taka víti gegn Amir enda Amir mikill vítabani.
Síðasti leikur Hauka var gegn Sindra en Haukamenn rótburstuðu þeim leik 7-1, en Ásgeir Ingólfsson skoraði í þeim leik þrennu. Laugardaginn þar áður fóru Haukar í heimsókn til Grenivíkur og sigruðu þar lið Magna 2-0.
Dómarar í leiknum á Selfossi verða þeir Frosti Viðar Gunnarsson, Einar K. Guðmundsson og Viðar Helgason. Eftirliðsmaður KSÍ verður á staðnum en fyrir hönd KSÍ verður Arnar S. Guðlaugsson.
Ekki er búist við að Ásgeir Ingólfsson verði með á sunnudaginn, en hann er eins og flest allir vita í u-19 landsliðinu sem er að spila tvo æfingarleiki hér á landi um helgina.
Eitt stig dugar til að sigra deildina og ætlum við því að fjölmenna á völlinn á sunnudaginn og taka svo við dollunni gegn ÍR laugardaginn 15.september.
ÁFRAM HAUKAR