Leikjaskóli barnanna er fyrir þessi yngstu, eða þau sem eru 2-5 ára (2021-2025) og eru öll börn, nær og fjær, hjartanlega velkomin til okkar!

Leikjaskóli barnanna byrjar aftur eftir jólafrí, laugadaginn 10. janúar 2026.
Leikjaskólinn verður með sama sniði og áður á laugardagsmorgnum kl. 9.00-9.50,  en börnunum verður  skipt upp eftir aldri.
Kennsla fer fram á laugardögum  í handboltasal og Ólafssal á Ásvöllum.

Markmið leikjaskólans er að kynna fyrir iðkendum  íþróttasalinn  og áhöld sem þar eru.  Þá er farið í grunn hinna ýmsu greina ásamt grunnhreyfingum barna. Mikil  áhersla er lögð á að iðkendur fái að njóta sín í faðmi forráðamanna sem eru með þeim allan tímann til halds og trausts. Börnin fá hér samverutíma í íþróttasölunum með forráðamönnum og undirbúningur fyrir skólavist er þá hafin.
Verð á vorönn er kr. 17.000-.  Skráning fer fram á  Sportabler

Þjálfarar leikjaskólans eru Albert Magnússon og Alexandra Hödd Harðardóttir,  en þau eru okkur að góðu kunn og hafa þjálfað hjá félaginu í mörg ár. Með þeim eru einnig aðstoðarþjálfarar.

Sjáumst hress í Leikjaskólanum og munum að hafa gaman og njóta samverunnar saman!