Leikir yngri flokka

Hér til hliðar er komið yfirlit yfir næstu leiki yngri flokka okkar Haukafólks. Á síðunni munu birtast 5 næstu leikir í yngri flokkum.

Leikjafyrirkomulag í 2. flokki karla, unglingaflokki karla og unglingaflokki kvenna er óbreytt frá því í fyrra. 2.flokkur karla leikur í norður riðli 1.deildar, unglingaflokkur karla leikur með eitt lið í 1.deild og eitt lið í 2. deild og unglingaflokkur kvenna leikur með tvö lið í 2.deild.

Sú breyting á sér stað í vetur að 4.flokkur karla og kvenna leikur í fyrsta skipti í deildarkeppni þar sem leikið er heima og heiman. Báðir flokkar spila í A og B liðum og eru öll liðin í 1.deild.

Keppt er í bikarkeppni í öllum flokkum og mun sú keppni einnig koma inn í næstu leiki.

Keppni í 5. og 6.flokki er óbreytt, keppt er á 5 mótum.