Langþráð úrslit æfinga

Vegna anna hefur ekki gefist tími til að senda inn eftirfarandi Haukaæfingar fyrr en nú og biðst undirritaður velvirðingar á því. Æfingarnar eru í tímaröð og eru þær síðustu birtar fyrstar.

27. nóv

Æfingin endaði með jafntefli Stefán F. og Varða; þeir voru báðir með 10 vinninga af 11 mögulegum. Varði gerði tvö jafntefli en vann Stefán F.

Lokastaðan:

1.-2. Stefán F. og Varði með 10 v.
3. Jón með 7,5 v.
4. Ingi með 7 v.
5. – 6. Ted og Jorge með 6,5 v.
7.-8. Gísli og Ragnar með 5 v.
9. Marteinn með 4,5 v.
10.-11. Geir og Kristján með 1,5 v.
12. Rúnar með 1 v.
__________________

20. nóv

Ákveðið var að hafa tvöfalda umferð út af lélegri mætingu. Heimir sigraði með 14,5 vinningum en Varði var í öðru sæti, tveimur vinningum á eftir.

1. Heimir með 14,5 v.
2. Varði með 12,5 v.
3. – 4. Aui og Stefán P. með 9,5 v.
5. Snorri með 8,5 v.
6. Gísli með 6 v.
7. Kristján með 5 v.
8. Geir með 4,5 v.
9. Guðmundur með 2 v.
_________________

13. nóv

Sverrir Þ. sigraði með 11,5 v. af 12. Ingi Tandri kom á eftir með 11 v.

1. Sverrir Þ. með 11,5 v.
2. Ingi með 11 v.
3. Stefán P. með 9,5 v.
4. Varði með 9 v.
5. Aui með 8,5 v.
6. – 8. Gísli, Snorri og Sverrir(eldri) með 5,5 v.
9. – 10. Kristján og Marteinn með 4 v.
11. Ragnar með 3 v.
12. Geir með 1 v.
13. Rúnar með 0 v.
_______________

6 nóv.

Þessi æfing var sú fyrsta í mánuðinum og var því ákveðið að bregða aðeins út af. Tefldar voru sjö 10 mín. skákir eftir Monrad-kerfinu. Stefán F. var hæstur með 6,5 vinning af 7 mögulegum en á eftir honum komu Heimir og Varði með 5 v. hvor.

1. Stefán F. með 6,5 v.
2. – 3. Heimir og Varði með 5 v.
4. – 6. Ingi, Sverrir og Stefán P. með 4,5 v.
7. Aui með 4 v.
8. – 9. Geir og Marteinn með 3 v.
10.-11. Sverrir(eldri) og Ragnar með 2,5 v.
12.-.13. Kristján og Rúnar með 2 v.
14. Skotta með 0 v.
_________________

30. okt.

Varði kom sá og sigraði, fékk fullt hús, en á eftir honum kom Sverrir Þ. með 11 v.

1. Varði með 12 vinninga
2. Sverrir Þ. með 11 v.
3. Ingi með 9,5 v.
4. – 6. Aui, Gísli og Guðmundur með 7 v.
7. Stefán P.með 6,5 v.
8. Raggi með 5 v.
9. – 10. Geir og Snorri með 4 v.
11. Sverrir(eldri) með 3 v.
12. Kristján með 2 v.
13. Rúnar með 0 v.

Eftir hefðbundna æfingu var haldið liðakeppni. Varði, Gísli, Aui og Kiddi (lið 1) tefldu á móti Sverri Þ., Inga, Geir og Sverri G (lið 2).

1. umf. 1-3
2. umf. 2-2
3. umf. 3-1
4. umf 2,5-1,5

Lið 1 sigraði að lokum með 8,5 v. á móti 7,5

Haukaæfingarnar eru hraðskákmót á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 í samkomusal Hauka við Ásvelli. Allir eru velkomnir!

-Kiddi