Kynslóðabilið brúað á hvítum reitum

Hafnarfjarðarkirkja, Hrókurinn, Kátu biskuparnir, Riddarinn og Haukar standa að skákmóti á laugardaginn fyrir 15 ára og yngri og 60 ára og eldri.

Strandbergsmótið í skák verður haldið nk. laugardag 22. október klukkan 13. Mótið er ætlað skákmönnum 15 ára og yngri og 60 ára og eldri. Kynslóðabilið er þannig brúað á hvítum reitum og svörtum. Glæsilegir vinningar eru á mótinu, peningarverðlaun, ferðir til Færeyja og splunkunýjar bækur.

Hrókurinn og Hafnarfjarðarkirkja standa að Strandbergsmótinu í samvinnu við hafnfirsku taflfélögin Kátu biskupana, skákdeild Hauka og kempurnar í Riddaranum, sem er skákklúbbur eldri borgara í Hafnarfirði.

Strandbergsmótið var haldið í fyrsta skipti í fyrra og tókst afar vel. Mótið markaði upphaf að 90 ára afmælishátíð Hafnarfjarðarkirkju. Þar kepptu margir kunnir skákmenn af eldri kynslóðinni og fjöldi efnilegra barna. Sigurvegari varð Ingvar Ásmundsson, og varð hann því fyrsti Strandbergsmeistarinn.

Við setningu Strandbergsmótsins mun Sigurjón Pétursson form. sóknarnefndar flytja ávarp og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og nýkjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins leika fyrsta leikinn.

Mótið á laugardaginn hefst klukkan 13. Tekið er við skráningum í netfanginu hrokurinn@hrokurinn.is og hjá Mána í síma 867770. Þátttaka er ókeypis, og er eina skilyrði að keppendur séu á grunnskólaaldri eða fæddir 1945 eða fyrr.

Teflt í er í einum opnum flokki, 7 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.

Verðlaunin eru glæsileg. VKS, sem einnig var aðalbakhjarl mótsins í fyrra, gefur peningaverðlaun. Verðlaun fyrir fyrsta sæti eru 25.000 krónur, fyrir 2. sæti 15.000 krónur og fyrir 3. sæti. 10.000 krónur.

Sigurvegarinn fær líka ferð fyrir tvo til Færeyja með Atlantic Airways, sem annast samgöngur bræðraþjóðanna. Allir keppendur munu eiga þess kost að vinna Færeyjaferð fyrir tvo í happdrætti, sem haldið verður í mótslok. Þá verða nýjar bækur frá JPV-útgáfu í vinninga og fleira skemmtilegt. Verðlaun eru veitt í flokki barna í 1.-3. bekk, 4.-7. bekk og 8.-10. bekk.

Skákhátíðin í Hafnarfirði heldur áfram á sunnudag. Þá mun Guðmundur G. Þórarinsson fv. forseti Skáksambands Íslands predika í skákmessu í Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.00. Prestur er sr. Gunnþór Þ.Ingason, sóknarprestur. Eftir messu verður keppendum á Strandbergsmótinu og gestum þeirra boðið til hádegisverðar og verðlaunaafhendingar. Kl.13.00 mun Friðrik Ólafsson, stórmeistari síðan tefla fjöltefli við verðlaunahafa Strandbergsmótsins. Öllum er velkomið að fylgjast með taflmennskunni á Strandbergsmótinu og koma í skákmessuna.