Jólasveinarnir koma til byggða

Jólasveinarnir halda nú til byggða og eins og landsmenn vita er Stekkjastaur fyrstur þeirra.

Leikmenn meistaraflokkanna skelltu sér í jólagallann og munu birtast hér á síðunni í formi jólasveina á meðan körfuknattleiksdeildin telur niður dagana til jóla.

Stekkjastaur kom fyrstur,
stinnur eins og tré.
Hann laumaðist í fjárhúsin
og lék á bóndans fé.

Hann vildi sjúga ærnar,
– þá var þeim ekki um sel,
því greyið hafði staurfætur,
– það gekk nú ekki vel.