Jólaskákmót Hauka í dag – börn og unglingar

Jólaskákmót Hauka fyrir börn og unglinga verður í dag og hefst mótið kl. 17.20 og stendur til amk. 18.30 og trúlega aðeins lengur.

Eftir mótið í dag fara æfingar í jólafrí og hefjast aftur mánudaginn 6. janúar kl.17. þá mun Þorvarður F. ‘Olafsson sinna forfallakennslu í forföllum þjálfara sem verður á skákmóti erlendis yfir áramótin.

Helstu viðburðir yfir jól og áramót eru þessir

Jólapakkamót Hellis í Ráðhúsi Reykjavíkur laugardaginn 20 des kl. 13. Nánari upplýsingar og skráning er á www.hellir.is. Þetta mót er líklega fjölmennasta barnamót hvers árs og er fyrir krakka í mörgum flokkum á grunnskólaaldri.

Unglingameistaramót Íslands fer fram sunnudaginn 21 des og mánudaginn 22 des í Skákhöllinni Faxafeni 12. og hefst kl. 13. á sunnudag. teflt er frá kl. 11 seinni daginn. Mótið er fyrir börn og unglinga 20 ára og yngri. Sjá nánar og skráning á skak.is

Íslandsmót Barna 10 ára og yngri. (fædd 1998 og síðar) verður haldið Laugardaginn 10. janúar 2009 í skákhöllinni í faxafeni 12. Mótið verður um leið undankeppni fyrir Norðurlandamót í skólaskák sem fram fer í Færeyjum um miðjan febrúar. sjá nánar á skak.is eftir áramót.

Ath. að á skak.is má sjá mótaáætlun yfir öll helstu mót á landinu fram til vors.