Jólamót og síðasta barnaæfingin

Síðasta barnaæfing Haustsins verður haldin næsta þriðjudag 13. desember og þá verður einnig haldið jólamót þar sem verðlaun verða bæði fyrir stráka og stelpur.

Fyrsta æfing eftir áramót verður svo þriðjudaginn 10. janúar.

Í haust bættist við töluverður hópur af krökkum fyrir utan þá sem voru fyrir síðan í fyrra og hefur starfið í haust pínulítið einkennst af kennslu grunnatriða. Td. er búið að fara í hvenær má hróka, hvað er framhjáhlaup og hvernig á að máta með þungu mönnunum, auk þess hvernig skal forðast heimaskítsmát og alltaf skuli gæta að f peðinu við kónginn. Hvað gerist þegar peð fer upp í borð, og hvers virði einstakir taflmenn eru. þe. hvernig er óhætt að skipta upp.

Eftir jól verður haldið áfram á sömu braut. td. Grundvallaratriði í byrjunum og hvað gerist eftir að byrjun lýkur. Hvernig skal nýta sér liðsyfirburði og grunnatriði í peðsendatöflum.