Hvernig er stemmingin fyrir leiknum ?

Eins og við greindum frá í gær, þá er stórleikur í Eimskipsbikarnum á morgun, leikur Vals og Hauka í Vodafone-höllinni á Hlíðarenda klukkan 16:00. Við fengum nokkra leikmenn meistaraflokks til að segja okkurhvernig stemmingin væri fyrir leiknum hjá liðinu. Hér fyrir neðan eru svör leikmannana.

Aron Kristjánsson, þjálfari liðsins; „Hún er mjög góð. Við tönkuðum slatta af sjálfstrausti á móti Stjörnunni í síðasta leik og erum klárir í bikarslaginn. Bikarleikir eru alltaf sérstakir og eru það sér lögmál sem gilda þar. Hungrið í sigur er afgerandi í bikarleikjum!“

Halldór Ingólfsson, reyndastileikmaður liðsins: „ Gríðaleg stemmning fyrir þessum leik og við stefnum að ná sem lengst í bikarkeppninni, á góðum degi með stuðningi áhorfenda getum við unnið hvaða lið sem er þannig að við stefnum að sjálfsögðu á sigur og ætlum okkur að taka eitt skref til viðbótar í átt að sjálfum bikarnum á sunnudaginn.“

Gísli Guðmundsson, einn af markvörðum Hauka; „Stemmningin er mjög góð enda ekki ástæða til annars.  Allir heilir fyrir utan "þann gamla örvhenta" og sjálfstraustið í liðinu gott eftir góðan sigur á móti Stjörnunni.  Höfum spilað tvisvar við Val í vetur unnum þann fyrsta og vorum óheppnir að gera aðeins jafntefli í síðasta leik á Ásvöllum.  Engin ástæða til annars en að stefna á sigur.  Leikurinn verður eflaust mjög skemmtilegur og spennandi enda hafa Valsarar einnig verið að leika vel eftir brösuga byrjun.  Það er klárt að báðum liðum langar í 4-liða úrslit og því hvet ég sem flesta að flykkjast í Vodafone-höllina og hvetja okkar lið.  Áfram Haukar.“

Magnús Sigmundsson, hinn markvörður Hauka; „Stemmingin er bara góð hjá okkur enda gengur vel í deildinni enda hefur leikur okkar batnað leik frá leik og þá sérstaklega varnarlega. Með Vals leikinn er þetta bara 50/50 leikur enda þeir búnir að vera að spila vel undafarna leiki en við erum taplausir í nýju höllinni þeirra og stefnan er að halda því þannig“

Jón Karl Björnsson, hornamaður og vítaskytta liðsins; „Heyrðu stemmningin er svona svakalega góð fyrir leiknum á sunnudag við Val. Þetta verður væntanlega hörkuleikur eins og hinir tveir í deildinni þar sem við unnum með einu á Hlíðarenda og svo jafntefli heima. Valsarar eru sterkir núna og eru á smá skriði og þá er það bara að stoppa það og tryggja okkur sæti í 4 liða úrslitum í bikar og að sjálfsögðu ætlum við að reyna að komast í Höllina“

Freyr Brynjarsson, hornamaður liðsins; „ Mér persónulega lýst mjög vel á þennan leik og hlakka ég mikið til að koma á minn gamla heimavöll. Ég finn mig ávallt vel á Hlíðarenda. Valsmenn eru með sterkt lið og þeir hafa verið á siglingu undanfarið, þetta verður hörkuleikur frá byrjun til enda. Hjá okkur verður varnarleikurinn á hávegum hafður og ef við spilum þann varnarleik sem við höfum verið að spila undanfarið ásamt því að stoppa hraðarupphlaup þeirra þá vinnum við þennan leik. Ég vona að sem flestir mæti á Hlíðarenda til að styðja okkur þó svo að leikurinn sé sýndur í sjónvarpinu.“

Arnar Jón Agnarsson,  ein af fjölmörgu stórskyttum liðsins; „ Stemmingin er góð. Flottur leikur á fimmtudaginn (gegn Stjörnunni) og nú verðum við  bara að halda áfram og mæta ferskir í leikinn á móti Val. Þetta er nú bikarleikur og það er komin tími á bikartitill hjá okkur Haukamönnum “

Kári Kristján Kristjánsson, línutröll liðsins; „ Ef að okkar fólk mætir eins vel og núna síðast í Mýrina og hvetur okkur eins og þau gerðu, þá skiptir ekki neinu máli hvort við spilum í Dótafónhöllinni eða einhverstaðar annarstaðar “

– Arnar Daði Arnarsson skrifar.