HK – Haukar 1-0

Í kvöld sóttu okkar menn HK-inga heim í Kópavoginn. Leikurinn var ansi kaflaskiptur, fyrri hálfleikur var hin ágætasta skemmtun á köflum en sá seinni töluvert bragðminni og meira um baráttu en fótbolta.
Heimamenn hófu leikinn af krafti og voru mun betri aðilinn fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo, áttu m.a. dauðafæri á 13. mín. sem endaði með því að Biggi Rafn gamli Haukamaðurinn þrumaði boltanum yfir markið eftir mikið klafs í teignum. Eftir þennan kafla heimamanna náðu okkar menn betri tökum á leiknum og áttu mjög góðan leikkafla sem skilaði m.a. besta færi leiksins þegar Ómar slapp einn innfyrir vörn heimamanna en markvörður heimamanna náði að verja frá honum.
Á 32.mín. náðu heimamenn forystunni með snotru marki eftir langskot þar sem leikmaðurinn fékk undarlega mikið pláss til að athafna sig. Staðan 1-0 í hálfleik.
Eins og áður sagði einkenndist seinni hálfleikurinn mjög af stöðubaráttu og voru okkar menn talsvert meira með boltann án þess þó að skapa mikla hættu við mark heimamanna, sem spiluðu aftarlega og freistuðu þess að halda fengnum hlut. Fór það enda svo að ekkert mark var skorað í hálfleiknum og enduðu leikar með 1-0 sigri heimamanna.

Því miður er það svo að okkar menn byrja þetta tímabil mun lakar en menn bjuggust almennt við fyrir tímabilið. Þó þýðir ekkert að leggja árar í bát og nú verða allir að leggjast á eitt, hvort sem um er að ræða leikmenn, þjálfara, stjórn eða stuðningsmenn og koma liðinu úr þessum öldudal og á rétta siglingu aftur.

Áfram Haukar!