Hinn Útvaldi – barnasýning í Loftkastalanum

Fyrir hreinan klíkuskap býðst félagsmönnum Hauka frábært tilboð á stórkostlega barnasýningu eftir listamanninn knáa Gunnar Helgason.
Tilboðið hljóðar upp á helmings afslátt af leikhúsmiða þ.e. 1100 kr í stað 2200 kr
og gildir á sýninguna Sunnudaginn 19 september.
Takmarkað sætaframboð svo pantið tímanlega. Leyniorð fyrir afslátt er Haukar. Sýnt er í Loftkastalanum og ber að panta miða þar.

HINN ÚTVALDI er það sem má kalla öðruvísi barnasýningu. Hér er um að ræða spennufarsa… eða kannski frekar gamanhasar. Í verkinu þarf Einar, 11 ára gamall drengur úr Vesturbænum, að takast á við hrikalega illa geimveru sem stefnir að því að ná yfirráðum á jörðinni enda hún orðin útlagi frá sinni heimaplánetu.
Í spilið blandast tvær aðrar geimverur sem við vitum ekki alveg hvort eru góðar eða illar, tveir bandarískir trúboðar sem boða endurkomu hins útvalda, stóra systir og kærastinn hennar (þau eru alltaf í sleik…ojj) sem er ekki allur þar sem hann er séður og síðast en ekki síst mamma sem er ekki alveg eins og mömmur eru flestar.
Spennan verður þó fyrst óbærileg þegar Grettir sterki dettur bókstaflega inn á sviðið í gegnum tímann (og ísskápinn) og nærri eyðileggur Playstation 3 tölvu Einars…en það hefði getað kostað hann lífið!!!