Hauksigur fyrir norðan

Í kvöld léku okkar menn gegn liði Akureyrar í KA-heimilinu. Þökk sé heimasíðu Akureyringa getum við skrifað litla og fallega grein um leikinn.

Samkvæmt öruggum heimildum að norðan skoraði Sigurbergur fyrsta mark leiksins. Eftir það var leikurinn jafn og voru Akureyringar alltaf örlítið á undan en Gunnar Berg kom Haukum síðan yfir á 20. mínútu í stöðunni 6-7 og í framhaldinu komu tvö Haukamörk til viðbótat frá Jóni Karli og Andra Stefan, staðan því orðin 9-6 Haukum í vil. Norðanmenn náðu síðan að bíta örlítið frá sér og staðan í hálfleik jöfn 11-11. Síðari hálfleikurinn var mjög jafn eins og sá fyrri en Akureyringar leiddu þar til um stundarfjórðungur var eftir af leiknum er Halldór Ingólfsson skoraði mark úr víti í stöðunni 18-19. Eftir það létum við ekki forustuna úr höndum okkar og fórum með fimm marka sigur af hólmi, 27-22 eftir að staðan hafi verið 24-22 okkur í vil þegar innan við mínúta var eftir.

Sigur staðreynd og Haukar því komnir á toppinn á deildinni á markatölu, en Haukar eru með jafn mörg stig og Fram.

Næsti leikur hjá strákunum í deildinni er ekki fyrr en á sunnudaginn eftir viku, þ.e.a.s. 14.október.
En næsti Haukaleikur er á laugardaginn þegar stelpurnar okkar mæta HK að Ásvöllum á laugardaginn klukkan 13:00.

ALLIR Á VÖLLINN
ÁFRAM HAUKAR

– Arnar Daði Arnarsson skrifar