Haukastelpur fara í heimsókn í Árbæinn

Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Ramune PekarskyteÁ morgun fara fram þrír leikir í N1 deild kvenna. Þetta verða þrír síðustu leikirnir fyrir jólafrí en leikið verður í deildarbikar milli jóla og nýárs. Haukastelpur sækja stelpurnar í Fylki heim í Árbæinn og hefst leikurinn klukkan 16:00. Þarna mætast efsta og neðsta lið deildarinnar.

Það er ljóst að Haukastelpur verða í efsta sæti deildarinnar þegar jólafríið tekur við má búast við að Díana, þjálfari liðsins, sé ánægð með þann árangur. Haukastelpur hafa krækt sér í 18 stig í 10 leikjum, fjórum stigum fleiri en liðið í öðru sæti, Stjarnan, sem aðeins hefur leikið 8 leiki og munu ekki leika fleiri leiki fyrir áramót þar sem markmaður þeirra leikur með landsliði sínu á Evrópumótinu.

Fylkir hefur sigrað einn leik í deildinni í vetur og var það gegn liði Fram í 9. umferð deildarinnar. Í síðasta leik sínum töpuðu stelpurnar aðeins með einu marki gegn FH í Kaplakrika.

Við hvetjum alla til að mæta í Árbæinn og styðja sitt lið á morgun. 

Mynd: Hanna Guðrún og Ramune verða í fullu fjöri á morgun / stefan@haukar.is