Í kvöld tóku Haukastelpur á móti HK í N1 deild kvenna. Fyrir leikinn voru Haukastelpur í toppsæti deildarinnar og HK í því fimmta. Leikurinn var jafn allan tímann, HK stelpur skrefinu á undan allan fyrri hálfleikinn og Haukastelpur allan síðari hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 20 – 19, HK í vil. Lokatölur 40 – 35, 75 mörk í einum leik.
Hanna Guðrún Stefánsdóttir átti stórleik og skoraði 13 mörk.
HK stelpur skoruðu fyrsta mark leiksins og leiddu svo leikinn með einu til þremur mörkum allan fyrri hálfleikinn. Lítið virtist ætla að ganga upp hjá Haukastelpum og vörnin var mjög léleg. Í hálfleik höfðu verið skoruð 39 mörk, tölur sem algengari eru sem lokatölur í mörgum leikjum í N1 deild kvenna. Mörg sóknarmistök voru gerð í leiknum og hver sendingin á fætur annarri fór forgörðum. Hanna Guðrún Stefánsdóttir hafði skorað 7 mörk þegar flautað var til hálfleiks.
Í síðari hálfleik náðu Haukastelpur forystunni og héldu henni út leikinn. Hanna Guðrún hélt áfram að dæla inn mörkunum og skoraði samtals 13 mörk í leiknum. Haukastelpur fögnuðu svo fimm marka sigri 40 – 35, tölur sem sjaldan sjást í N1 deild kvenna.
Eins og áður segir var Hanna Guðrún markahæst í liði Hauka með 13 mörk. Ramune skoraði 9 og Nína Kristín Björnsdóttir skoraði 6. Hjá HK var Pavla Plaminkova markahæst með 8 mörk og þær Brynja Magnúsdóttir og Jóna S. Halldórsdóttir skoruðu 6 mörk hvor.
Þrátt fyrir mikið skor vörðu markmenn beggja liða vel. Hjá Haukum átti Guðrún Bryndís Jónsdóttir stórleik og varði 23 skot. Hinum megin varði Ólöf K. Ragnarsdóttir 14 skot.
Mynd: Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Ramune í leiknum í kvöld – stefan@haukar.is