Haukar-Valur mfl.karla

Strákarnir okkar unnu frábæran sigur á Val á Ásvöllum í kvöld 33-28.

Haukar skoruðu fyrsta markið, Valur jafnaði 1-1, Haukar áttu næstu tvö mörk 3-1 og héldu forystunni eftir það. Um miðjan fyrri hálfleik tóku þeir völdin og leiddu með sex mörkum í hálfleik. 19-13.
Í síðari hálfleik slökuðu okkar menn á og Valur sótti á forskotið og minnkaði í eitt mark 23-22 en komst sem betur fer ekki nær. Haukar bættu aðeins í og tryggðu sér glæsilegan sigur.

Haukar-Valur mfl.karla

Valur heimsótti strákana okkar á Ásvelli í kvöld og lauk leiknum með góðum sigri okkar manna 28-27. Tæpt var það en sigurinn frábær og stigin tvö dýrmæt.

Þessi leikur var ólíkur fyrri leik kvöldsins hjá stelpunum, hér var spennan í hámarki. Gestirnir skoruðu fyrsta markið en Haukar jöfnuðu strax 1-1 og jafnt var í 4-4. Þó tóku strákarnir okkar góða rispu og náðu góðu forskoti 11-6. Í stöðunni 14-10 fór allt í baklás og Valur náði að jafna 14-14 rétt áður en flautað var til hálfleiks.
Haukar höfðu að mestu yfirhöndina í síðari hálfleik, mest þó 3 mörk. Valur jafnaði 20-20 og komust yfir 24-25 í fyrsta skiptið frá byrjun leiks er staðan var 1-2 fyrir Val. Lokamínútur voru æsispennandi 26-26 og 27-27. Haukar skoruðu 28-27 og héldu út síðustu mínútuna og unnu mikilvægan sigur.