Haukar-Valur 8-liða úrslit kvenna

Stelpurnar okkar héldu vel uppá afmælisdag félagins og unnu öruggan stórsigur á Val 33-19 í fyrsta leik í 4-liða úrslitum á Ásvöllum í kvöld.

Haukar skorðu fyrsta markið og tóku öll völd á vellinum strax í byrjun og fljótt var staðan 6-1. Þær keyrðu áfram og breyttu stöðunni í 13-4 og í hálfleik var 15-6. Í seinni hálfleik náði Valur að minnka í sex mörk 18-12 og 20-14 en nær komust þær ekki. Stelpurnar okkar settu í gírínn, skoruðu næstu sjö mörk og breyttu stöðunni í 27-14 og unnu frábæran sigur 33-19.

Yfirburðir Hauka voru algjörir og áttu Valsstelpur aldrei möguleika. Staðan er núna 1-0 og nú mætum við öll á Hlíðarenda á fimmtudaginn og styðja stelpurnar okkar til sigurs.