Á föstudaginn fór fram leikur Hauka U og Hattar í 1.deild karla á Ásvöllum. Strákarnir okkar spiluðu mjög vel. Staðan í hálfleik var 16-11 okkar strákum í vil. Í síðari hálfleik juku strákarnir forskotið og endaði leikurinn með 10 marka sigri 30-20. Markahæstur í liði Hauka var Jónatan Jónsson með 7 mörk, Vigfús Gunnarsson skoraði 6 mörk og Orri Sturluson skoraði 5.