Í kvöld fór fram leikur Hauka U og FH í 1.deild karla. FH-ingar byrjuðu betur og komust fljótlega yfir 2-6. Þá tóku strákarnir okkar sig örlítið á og náðu að minnka muninn í 4-6. Þá juku FH ingar forskotið aftur og komust í 5-10. Þeir héldu þessu 5 marka forskoti þar til í hálfleik en staðan þá var 8-12.
Í síðari hálfleik byrjuðu okkar strákar mun betur. Þeir náðu að minnka muninn úr 9-12 í 11-13. En þá kom aftur góður kafli hjá FH og komust þeir í 13-18. Þeir náðu mest 7 marka forskoti, 16-23. Lokatölur voru 18-24.