Haukar-Torggler Meistaradeildin

Strákarnir okkar unnu góðan sigur 32-19 á ítalska liðinu Torggler Meran á Ásvöllum í dag.
Haukar voru lengi í gang og byrjunin var frekar slök, sérstaklega sóknarlega. Ítalarnir byrjuðu betur og höfðu forystu framan af fyrri hálfleik en Haukar söxuðu á og jöfnuðu 9-9 þegar um 20 mín voru liðnar af leiknum. Þá fóru hlutirnir að ganga, vörnin small og gestirnir skoðuð aðeins 2 mörk það sem eftir lifði hálfleiks en Haukar skorðu 6 og staðan því 15-11 í hálfleik.
Haukar komu vel stemmdir til síðari hálfleiks og byrjuðu af krafti, náðu mest sjö marka forystu og allt útlit fyrir stórsigur. En þá kom slæmi kaflinn, menn gáfu eftir, hægðu á og ítalarnir gengu á lagið og minnkuðu muninn. Sigurinn var þó aldrei í hættu og unnu strákarnir með þremur mörkum 32-29 og lönduðu fyrstu stigunum í Meistaradeildinn.

Haukar-Torggler Meistaradeildin

Fréttatilkynning frá Handknattleiksdeild Hauka

Karlalið Hauka mætir ítalska liðinu Torggler Group Meran sunnudaginn 16. október kl. 17:00 á Ásvöllum í C-riðli Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn er afar þýðingarmikill fyrir bæði lið sem hafa tapað báðum leikjum sínum fram til þessa í keppninni. Í húfi er þriðja sætið í riðlinum, sem veitir þátttökurétt í Evrópukeppni bikarhafa, en Haukar hafa þó ekki enn gefið annað sætið í riðlinum upp á bátinn.

Ítalska liðið tapaði fyrst illa á eigin heimavelli gegn slóvenska liðinu Gorenje og síðustu helgi biðu þeir lægri hlut gegn Århus GF á útivelli með sjö mörkum. Haukar töpuðu naumlega gegn Århus á heimavelli en steinlágu fyrir Gorenje á útivelli um síðustu helgi.

Haukar vonast eftir kraftmiklum stuðningi allra unnenda íslensks handknattleiks á Ásvöllum á sunnudaginn.

Frekari upplýsingar veita:

Þorgeir Haraldsson, sími: 894-6146
formaður handknattleiksdeilar Hauka

Þorvarður Tjörvi Ólafsson, sími: 822-2867
fulltrúi í Evrópunefnd Hauka