Haukar sigruðu í Njarðvíkurmótinu

Á sunnudaginn sl. fór fram Njarðvíkurmótið í 6.flokki í Reykjaneshöll. Alls 24 lið tóku þátt með samtals hátt í 200 keppendum. Eftirfarandi félög tóku þátt Grindavík, Haukar, Keflavík, Njarðvík, Víðir / Reynir og Þróttur Vogum sem léku í fjórum deildum. Haukar uinnu mótið þar sem þeir sigruðu í Argentísku deildinni glæsilega en þeir unnu alla leikina sína, skorðu 18 mörk og fengu ekki á sig mark. Einnig unnu Hauikarnir Brasilísku deildina en þar var jafnar á milli liða. Mjög góð stemmning var hjá Haukastrákunum og er ljóst að þeir verða sterkir í sumar.

En staðan var eins og sýnir hér að neðan.

Argentískadeildin

Haukar sigruðu

Brasilískadeildin

Haukar sigruðu

Chiledeildin

Keflavík sigruðu, Haukar lentu í öðru sæti

Danskadeildin

Njaðvík sigruðu, Haukar lentu í þriðja sæti