Stelpurnar okkar spiluðu sinn fyrsta Evrópuleik í kvöld og unnu stórsigur 38-19 á ítalska liðinu Pelplast.
Sigurinn var aldrei í hættu, Haukar höfðu yfirhöndina frá fyrstu mínútu og áttu þær ítölsku aldrei möguleika gegn sterku liði Hauka.
Markahæstar voru Martha og Guðbjörg með 8 mörk hvor. Inga Fríða var með 7 mörk, Hanna Guðrún og Ramune 6 hvor og Erna Þráins, Harpa og Ragnhildur með eitt mark hver.
Frábær sigur og gæsilegt að byrja Evrópukeppnina með stórsigri.
Þó sigurinn hafi verið öruggur í kvöld er þetta bara fyrri hálfleikur en seinni leikurinn verður á Ítalíu um næstu helgi. Ef stelpurnar okkar spila sinn bolta og taka vörnina þá eiga þær að klára dæmið örugglega.