Á blaðamannafundi sem haldin var í dag vegna Meistaradeildarinnar var einnig skrifað undir endurnýjun á samstarfssamningi milli Handknattleiksdeildar Hauka og adidas til næstu tveggja ára.
Haukar og adidas hafa átt í viðskiptum síðan 1989 eða í 15 ár samfleytt. Hér er líklega um lengsta viðskiptasamband íþróttavöruframleiðanda og handknattleiksliðs á Íslandi.
Samstarfið hefur verið ánægjulegt öll þessi ár, Haukar þekkja góðar vörur og eru stoltir af því að nota adidasvörur og adidas er stolt af liðum Hauka, hvort sem um ræðir yngri flokka eða meistaraflokka karla og kvenna.
Á myndinni eru Helgi Ásgeir Harðarson, framkvæmdastjóri hkd. Hauka og Ásmundur Vilhelmsson framkvæmdastjóri Sportmanna ehf. Helgi heldur á nýjustu keppnistreyjunni en Ásmundur á þeirri elstu eða frá 1989.