Haukar-Kiel

Leikurinn við meistara Kiel endaði 28-35 en þrátt fyrir tapið geta strákarnir okkar borið höfuðið hátt. Þeir voru að spila á móti einu albesta félagsliði heimsins í dag, sem í er m.a. stór hluti af sænska landsliðinu. Þeir mættu tilbúnir í leikinn, voru komnir í “Evrópugírínn” og báru enga virðingu fyrir stórstjörnum í liði andstæðinganna.

Kiel skoraði fyrsta markið og var yfir þar til Haukar jöfnuðu 5-5. Haukar voru svo yfir 6-5 og 7-6 og síðan var jafnt á öllum tölum í 10-10 en undir lok fyrri hálfleiks náði Kiel góðum kafla og staðan í hálfleik var 12-16.
Strákarnir okkar byrjuðu seinni hálfleikinn vel, minnkuðu í 14-16 og niður í eitt mark 17-18 en komust ekki nær. Þá skoraði Kiel fjögur mörk í röð og breytti stöðunni í 17-22. Haukar minnkuðu í þrjú 20-23 og 22-25 en eftir það varð róðurinn þungur fyrir okkar menn. Þreytan fór að segja til sín en breiddin hjá Kiel er töluvert meiri. Á köflum fanst manni samt svo lítið vanta uppá og það sem helst skildi liðin að var nýting á dauðafærum.

Leikurinn var mjög skemmtilegur, hraðinn mikill og mikið af mörkum. Strákarnir okkar sýndu fína frammistöðu og voru að gera frábæra hluti inná milli. Þeir spiluðu sterka vörn þýsku meistaranna sundur og saman á köflum, sköpuðu sér fullt af færum, en því miður fóru þeir illa með mörg dauðafærin og gerðu sér þetta ansi erfitt. Vörnin var frábær á köflum og fyrir aftan stóð Birkir Ívar og varði eins og berserkur. Gaman var að fylgjast með vítaeinvígi Dóra og Henning Fritz. Dóri mætti svellkaldur á línuna og átti besti markamaður heims ekkert svar við snilld “gamla mannsins”.

Strákarnir okkar geta gengið stoltir frá leiknum og frábært fyrir þá að etja kappi við þá bestu og gaman fyrir alla íþróttaunnendur að fá svona stórlið til landsins. Áhorfendur fjölmenntu á Ásvelli og studdu vel við bakið á strákunum og skemmtu sér hið besta.

Handboltaveislan heldur áfram og er næsti leikur hjá strákunum í París n.k. föstudag við franska liðið Creteil. Leikurinn verður sýndur í beinni og horfum við Haukar á hann saman á Ásvöllum. Tímaseting nánar auglýst síðar.