Haukar-KA SS-bikar mfl.ka.

Hann endaði dapurlega leikurinn hjá strákunum á Ásvöllum í gærkvöldi. Þeir tóku á móti KA í 16-liða úrslitum SS-bikarsins og töpuðu leiknum 34-35.

Fyrri hálfleikur var skelfilegur hjá strákunum okkar og virtust þeir algjörlega hafa gleymt hvernig spila á vörn. Gestirnir skoruðu fyrstu tvö mörkin, jafnt var 4-4 en þá sigu gestirnir framúr, 6-10, 15-19 og í hálfleik var staðan 17-22. Já, þetta var staðan í hálfleik, þeir fengu á sig tuttugu og tvö mörk. Strákarnir komu mjög vel stemmdir til leiks eftir hlé og skoruðu ellefu mörk á móti tveim KA mörkum og staðan orðin 28-24. En uppúr miðjum seinni hálfleik slökknaði á strákunum og öll barátta var horfin. Gestirnir jöfnuðu 29-29 og komust yfir 29-31. Aftur var jafnt 32-32 en síðustu mínútur gekk ekkert upp hjá strákunum okkar og lokatölur urðu 34-35.