Haukar – HK í kvöld kl. 19:30 í Schenkerhöllinni.

Adam-Baumruk-300x242Haukar munu taka á móti HK í kvöld, fimmtudaginni 12. febrúar, í Olís deild karla og hefst leikurinn kl. 19:30.

Haukarnir byrjuðu sterkt eftir hið langa landsleikjahlé og lögðu Eyjamenn á erfiðum útivelli. Strákarnir spiluðu nokkuð vel og var liðsheildin sterk. Með sigrinum náðu strákarnir að komast nær efri hlutanum og því er leikurinn í kvöld gríðarlega mikilvægur.

Haukar sitja í 7. sæti deildarinnar en geta með sigri lyft sér upp í 6. sæti ef önnur úrslit verða þeim hagstæð.  HK sitja á botni Olís deildarinnar með tvo sigra og 15 töp en hafa verið að styrkja sig og því má búast við hörku leik.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn þá verður hægt að horfa á hann á haukartv.