Haukar heimsækja Víkinga

Á morgun mun meistaraflokkur karla leika gegn botnliði N1-deildar karla, Víkings. Leikurinn byrjar klukkan 19:30 og fer fram í Víkinni í Fossvoginum.

Víkingar eru eins og fyrr segir á botni deildarinnar með einungis eitt stig en eina stigið sem þeir hafa fengið í deildinni var gegn Stjörnunni 6.nóvember.

Haukar eru í 5.sæti deildarinnar með 10 stig aðeins þremur stigum á eftir Val sem eru efstir í deildinni en Haukar eiga leik til góða. Leikurinn á morgun er því mjög mikilvægur fyrir strákana en þeir fá kjörið tækifæri til að nálgast toppinn enn meira.

Þótt ótrúlegt megi virðast þá eru Haukar með næst bestu markatöluna í deildinni þrátt fyrir að hafa sigrað fimm leiki og tapað fjórum. Og með sigri á morgun komast þeir svo uppfyrir Akureyri og FH á markamun.

Víkingar eru líklega orðnir þyrstir í stig en nú skiptir hver einasti máli fyrir þá í deildinni ef þeir ætla að halda sér uppi enda fækka leikirnir sem eftir eru með hverjum leiknum sem þeir spila. Því verður ekkert gefið á morgun en með réttu hugafari og eðlilegri spilamennsku ættu Haukar að innbyrða sigur í þessum leik.

Styðjum strákana og fjölmennum í Víkina á morgun. Leikurinn hefst klukkan 19:30.

Tveir leikir verða í N1-deildinni á samatíma en FHingar heimsækja Valsmenn heim og þá mætast HK og Akureyri í Digranesinu.